í fremstu röð frá 1971

Leiðandi fyrirtæki í hönnun og smíði vélbúnaðar

Allt frá stofnun hefur VHE unnið að því með metnaði og áræði að hanna og framleiða vélbúnað sem færir viðskiptavinum aukna samkeppnishæfni og árangur í sinni starfsemi.

Í dag rúmlega 50 árum síðar er vélbúnaður frá VHE í yfir 25 löndum með yfir 70 uppsetningar á búnaði. Á þessum tíma hefur VHE sérsmíðað yfir 99 sérsmíðaðar vélar sem hannaðar eru sérstaklega út frá þörfum hvers viðskitpavinar.

+ 0
  • ára
  • reynsla
0
  • lönd með búnað
  • frá VHE
+ 0
  • sérsmíðaðar
  • vélar
+ 0
  • uppsetningar
  • erlendis
Frá 1971

Saga VHE

VHE eða Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf. var stofnað árið 1971 af Hjalta Einarssyni og eiginkonu hans Kristjönu G. Jóhannesdóttur.

Saga VHE Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf síðan 1971
Saga VHE Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf síðan 1971
Saga VHE Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf síðan 1971

Lengi vel fór starfsemin að mestu fram í skúr á lóð þeirra hjóna við Suðurgötuna í Hafnarfirði.Helstu verkefni fyrirtækisins í upphafi voru fyrir ýmis útgerðarfyrirtæki og smærri verktaka og fólust bæði í vélaviðgerðum, rennismíði og ýmis konar stálsmíði.

Í dag eru höfuðstöðvar fyrirtækisins að Melabraut 21-27 í Hafnarfirði, í alls 5 byggingum. Á tíunda áratug síðustu aldar var eignarhaldi fyrirtækisins breytt. VHE er ennþá fjölskyldufyrirtæki en er nú rekið af börnum Hjalta og Kristjönu. 

Uppbygging stóriðju á Íslandi og þá einkum áliðnaðarins hafði í för með sér miklar breytingar á rekstri VHE og undir lok síðustu aldar voru verkefni tengd þessum geira orðin stærsti hluti starfseminnar.

Uppúr aldamótum hóf fyrirtækið markvisst að styrkja stöðu sína sem alhliða þjónustuaðili fyrir stóriðjuna og þá einkum áliðnaðinn. Fjárfest var í nýjum tækjum og búnaði til að geta betur sinnt ýmsum krefjandi verkefnum. Þá voru einnig allnokkur fyrirtæki keypt sem höfðu til að bera reynslu og þekkingu á þessu sviði og starfsemi þeirra annaðhvort sameinuð rekstri VHE eða þau rekin áfram sem sjálfstæð dótturfyrirtæki VHE.

Árið 2007 þegar Alcoa á Reyðarfirði hóf starfsemi sína gerði fyrirtækið þjónustusamning við VHE.

Í kjölfar þessa samnings hófst mikil uppbygging hjá VHE á austurlandi en þar er fyrirtækið nú með u.þ.b. 6.000m2 verkstæði og 6.500m2 lagerhúsnæði.

Fljótlega eftir að starfsemi hófst á austurlandi tók VHE yfir verkefni byggingasviðs Malarvinnslunnar á Egilsstöðum. Í framhaldi af því hóf fyrirtækið rekstur byggingadeildar á austurlandi. Árið 2011 hófst sambærileg starfsemi VHE á Reykjavíkursvæðinu með kaupum á byggingafyrirtækinu Fonsa ehf.

Í dag veitir VHE áliðnaðinum og öðrum fyrirtækjum alhliða þjónustu á fjölmörgum sviðum. VHE framleiðir einnig ýmsar gerðir véla, vélbúnaðar og mælitækja fyrir innlend og erlend fyrirtæki.