VHE annast viðgerðir á tjökkum og glussakerfum fyrir nánast öll tæki og vinnuvélar.
Áratugalöng reynsla af viðgerðum á fjölbreyttum búnaði og kerfum.
VHE tekur á móti tjökkum í viðgerð en einnig er boði að fá þjónustubíl VHE á staðinn þar sem ýmist er hægt að veita þjónustuna á staðnum eða eða flytja búnaðinn á verkstæði okkar.
Allir tjakkar eru þrýstiprófaðir áður en þeir eru afhentir.
Í ákveðnum tilfellum getur verið hentugra að fá þjónustubíl VHE á svæðið til þess að gera við glussakerfi og eða tjakka. Hafðu samband og saman finnum við hentugustu leiðina.
Hjá okkur er sterkur varahlutalager sem býr yfir góðu úrvali af þéttingum og öðrum varahlutum. Við þekkjum hversu mikilvægt er að koma búnaði sem fyrst af stað í vinnu aftur og vinnum því þétt með okkar viðskiptavinum að stytta allan stopptíma eins og hægt er. Við setjum okkur markmið um hraða og örugga afgreiðslu.
VHE er leiðandi á Íslandi í hönnun, smíði, viðhaldi og viðgerðum á tjökkum og flóknari glussakerfum. Við smíðum nýja tjakka hvort sem þess þarf vegna viðhalds eða sem tjakka í nýjan búnað.
Hjá fyrirtækinu starfar reynslumikið teymi sem hefur tekist á við fjölbreytt og ögrandi verkefni þegar kemur að tjökkum og glussakerfum.
Verkstæðið er vel tækjum búið og við leggjum metnað okkar í vönduð vinnubrögð á öllum stigum og persónulega þjónustu við okkar viðskiptavini.
Við aðstoðum viðskiptavini okkar við að finna hentugustu lausnina hverju sinni. Ef það hentar gera upp búnað þá annast VHE alla hönnun og teikningavinnu og að endingu smíði og uppsetningu.