Nýsmíði viðhald og viðgerðir

Glussatjakkar

Glussatjakkar og glussakerfi eru hluti af þeim búnaði sem VHE veitir alhliða þjónustu við. VHE annast einnig hönnun, teiknivinnu, nýsmíði, viðhald og viðgerðir og glussatjökkum og glussakerfum.

Stálsmíði

Hönnun og framleiðsla sérhæfðra tækja og vélbúnaðar.

Þjónustusvið

Uppsetning, viðhald og viðgerðir á vélbúnaði og tækjum.

Verkfræðiþjónusta

Sérhæfð verkfræðiþjónusta í véltækni.

alhliða þjónusta fyrir glussatjakka

Hönnun smíði viðhald og viðgerðir

VHE er leiðandi á Íslandi í hönnun, smíði, viðhaldi og viðgerðum á tjökkum og flóknari glussakerfum. Hjá fyrirtækinu starfar reynslumikið teymi sem hefur tekist á við fjölbreytt og ögrandi verkefni þegar kemur að tjökkum og glussakerfum.

Verkstæðið er vel tækjum búið og við leggjum metnað okkar í vönduð vinnubrögð á öllum stigum og persónulega þjónustu við okkar viðskiptavini.

Leggréttivél
varhlutir og viðgerðir

Tjakkaviðgerðir og varahlutir

Hjá okkur er sterkur varahlutalager sem býr yfir góðu úrvali af þéttingum og annarra varahluta. Við þekkjum hversu mikilvægt er að koma búnaði sem fyrst af stað í vinnu aftur og vinnum því þétt með okkar viðskiptavinum að stytta allan stopptíma eins og hægt er.

Glussatjakkar glussakerfi tjakkaviðgerðir og þjónusta
hönnun og smíði

Við finnum lausnina

Við aðstoðum viðskiptavini okkar við að finna hentugustu lausnina hverju sinni. Ef það hentar ekki að kaupa tilbúin búnað og raða honum saman þá annast VHE alla hönnun og teikningavinnu og að endingu smíði og uppsetningu. 

Tindaréttivél frá VHE
UMMÆLI

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

[elementor-template id="1215"]